![]() |
||||
|
Sími/Tel: +354 4562011 fax:: +354 4562053 - flokalundur@flokalundur.is |
||||
Gisting
Hótel Flókalundur er heimilislegt sveitahótel með 15 notalegum eins og tveggja manna herbergjum. Öll herbergin eru með sér baði (wc/sturta), auk þess sem rúmgóð setustofa með sjónvarpi er á hótelinu. Hjólastólaaðgengi er í einu af herbergjunum. Veitingar
Veitingasalur er opinn frá 8.00 til 23.30. Morgunverðarhlaðborð er frá 8.00 til 10.00 og í hádegi er boðið upp á rétt dagsins ásamt smáréttarseðli sem hægt er að panta af allan daginn. Kvöldverðarmatseðill er frá 18.00-21.00. Eftir það er hægt að fá mat af smáréttarseðli til 23.00 Bensínstöð og verslun
Hægt er að kaupa eldsneyti, olívörur og flest annað smálegt sem bíllinn þarfnast. Verslunin er opin alla daga frá 9.00-23.00 þar sem fæst matvara, kol, gas ásamt því helsta sem þörf er á í ferðalagið. Tjaldsvæði
Tjaldsvæði er stutt frá hótelinu þar er góð aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna og fellihýsi. Hægt er að komast í rafmagn og í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturtur og aðstaða fyrir uppvask. Einnig er boðið upp á tauþvott á hótelinu. |
||||
Vatnsfirði 451 Patreksfjörður sími: 4562011 fax:: 4562053 póstur: flokalundur@flokalundur.is |
| Print View Site Map Login |