Sími/Tel: +354 4562011 fax:: +354 4562053 - flokalundur@flokalundur.is  

Vatnsfjörður

Í Vatnsfirði var gerð fyrsta tilraunin til landnáms á Íslandi er Hrafna Flóki settist þar að og þar var því gefið nafnið er hann fór í fyrstu fjallgöngu sem vitað er um hérlendis. Frá því segir Landnáma: “Vár var heldr kalt. Þá gekk Flóki upp á fjall eitt hátt ok sá norðr yfir fjöllin fjörð fullan af hafísum, því kölluðu þeir landit Ísland, sem það hefir síðan heitit.” Heimamenn telja að hann hafi gengið á Lómfell, sem er hæst nærliggjandi fjalla. Við Þingmannaá er gömul smiðjutóft sem sagt er að átt hafi Gestur Oddleifsson í Haga, en ekki er það líklegt.

Í Hörgsnesi er Gíslahellir, blaut og óvistleg hola þar sem Gísli Súrsson á að hafa falist. Langibotn í Geirþjófsfirði, jörð Auðar konu hans, liggur að friðlandinu að norðvestan.

Við fjörðinn hafa löngum legið alfaraleiðir og fornar vörður á víð og dreif um fjöllin vitna um löngu týndar götur.
Brjánslækur var eitt af höfuðbólum Guðmundar Arasonar á Reykhólum, sem sagður er auðugasti Íslendingur sem uppi hefur verið.

Eyðibýlin Þverá, Hella og Uppsalir fóru í eyði á fyrri hluta 20. aldar, en Vatnsdalsbakkar löngu fyrr. Á eyrunum innan við vatnið héldu Vestfirðingar þjóðhátíð í júlí 1974. Þá komu þar saman yfir 10.000 manns, eða mun fleiri en búa nú á Vestfjörðum
 
Friðlandið

Vatnsfjörður var gerður að friðlandi með lögum árið 1975. Friðlandið er í landi höfuðbólsins Brjánslækjar og eyðijarða sem liggja undir hann. Samkvæmt reglum um friðlandið mega hefðbundnar nytjar haldast, enda er sauðfjárbeit nokkur á svæðinu. Mörk þess eru við Þverá að vestan, síðan er í grófum dráttum fylgt vatnaskilum um Hornatær og Dynjandisheiði, allt norður í Glámu. Þaðan suður á Þingmannaheiði og suðvestur í Hörgsnes, sem markar fjarðarmynnið að austan.
Friðlandið er alls um 20.000 ha. Þar af eru 4/5 hlutar grýtt og gróðurlítið hálendi en láglendið er að mestu vaxið skógi
 
Umgengnisreglur í friðlandinu:

  • Ökum ekki utan vega og merktra slóða. Landið er lengi að jafna sig
  • Spillum ekki gróðri, dýralífi og jarðmyndunum.
  • Kveikjum ekki elda og förum varlega með heitt vatn.
  • Kennum börnunum að bera virðingu fyrir landinu
 
Hótel Flókalundur

Hótelið var byggt af Barðstrendingafélaginu árið 1966. Veitingarekstur hefur verið í Flókalundi síðan 1961 og var staðurinn löngum vinsæll áningastaður ferðalanga á svæðinu.

Núverandi eigendur eru Soffía Haraldsdóttir, Steinunn E. Hjartardóttir, Ólafur Haraldsson og Sævar Pálsson en þau hafa rekið hótelið frá 1999.  Talsverðar endurbætur hafa átt sér stað á byggingum hótelsins á síðustu árum. 

Vatnsfirði 451 Patreksfjörður sími: 4562011 fax:: 4562053 póstur: flokalundur@flokalundur.is

Print View   Site Map   Login