Sími/Tel: +354 4562011 fax:: +354 4562053 - flokalundur@flokalundur.is  

Á hótelinu er rekin minjagripaverslun þar sem lögð er áhersla á handverk úr héraði. Þar er seld glerlist eftir Auði Gunnarsdóttur og leirmunir eftir Valgerði Ingvadóttir. Enn fremur fást smyrsl Villimeyjar sem eru 100% náttúruleg, unnin úr íslenskum jurtum sem eru handtíndar í hreinni náttúru Vestfjarða þegar virkni þeirra er hvað mest. Þau eru án allra rotvarna-, ilm- og litarefna og eru lífrænt vottuð frá Vottunarstofunni Tún. Smyrslin eru framleidd af Aðalbjörgu Þorsteinsdóttur á Tálknafirði.

Einnig eru til sölu póstkort, frímerki og kort af svæðinu. Hægt er að póstleggja bréf og póstkort í minjagripaversluninni.

 
 

Vatnsfirði 451 Patreksfjörður sími: 4562011 fax:: 4562053 póstur: flokalundur@flokalundur.is

Print View   Site Map   Login